
Kvika eignastýring hefur undirritað samstarfssamninga við fjölda erlendra aðila um sölu og dreifingu á sjóðum þeirra. Viðskiptavinir Kviku eignastýringar hafa því aðgang að fjölbreyttu úrvali fjárfestingakosta um allan heim.

Kvika eignastýring hóf samstarf við Wellington Management árið 2016 um sölu og dreifingu á hlutabréfasjóðnum Global Quality Growth. Sjóðurinn fjárfestir í hlutabréfum á öllum helstu mörkuðum heims með langtíma árangur að leiðarljósi og áherslu á jafnvægi milli vaxtar, arðsemi og gæðaviðmiða. Wellington Management var stofnað í Bandaríkjunum árið 1928 og er fyrirtækið með 969 milljarða dollara í stýringu og annast þjónustu viðskiptavina í 60 löndum.

Kvika eignastýring hóf samstarf við T. Rowe Price árið 2016 um sölu og dreifingu á sjóðum þeirra. T. Rowe Price er þekkt á heimsvísu fyrir mikið úrval sjóða í öllum eignaflokkum og mörkuðum. T. Rowe Price var stofnað í Bandaríkjunum árið 1937 og er fyrirtækið með um 760 milljarða dollara í eignastýringu og starfsemi í 16 löndum. Fjárfestingarstefna T. Rowe Price er öguð með áherslu á rannsóknir, virka áhættustýringu og stöðugleika.

Amundi er stærsta eignastýringarfyrirtæki í Evrópu. Það varð til við samruna eignastýringar Societe Generale og Credit Agricóle árið 2010. Árið 2017 var Pioneer Investments hluti af Amundi eftir sameiningu. Fyrirtækið er með höfuðstöðvar í París og með skrifstofur í 37 löndum í Evrópu, Bandaríkjunum, miðausturlöndum og Asíu. Eignir í stýringu eru samtals 1,5 milljarður dollara.

Hermes Investments var stofnað árið 1983 og annaðist eingöngu eignastýringu fyrir lífeyrissjóð British Telecom (BT). Federated Investors keyptu meirihluta í Hermes árið 2018 sem nú heitir Federated Hermes. Starfsemi í 12 borgum í Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu. Sérhæfð eignastýring með 575 milljarða dollara í stýringu og 880 milljarða í ráðgjöf og 1900 starfsmenn. Samfélagsleg ábyrgð hefur lengi verið hluti af fjárfestingarferli Hermes.