Kvika eignastýring hf. er í hópi íslenskra fyrirtækja sem Creditinfo veitir viðurkenningu sem Framúrskarandi fyrirtæki tólfta árið í röð. Einungis um 2% fyrirtækja á Íslandi hljóta viðurkenninguna á hverju ári. Creditinfo setur ströng skilyrði við valið sem grundvallast á því að fyrirtæki byggi rekstur sinn á sterkum stoðum til langs tíma og efli hag fjárfesta og hluthafa.
Kvika eignastýring hefur einnig hlotið viðurkenningu sem Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2024 að mati Viðskiptablaðsins og Keldunnar. Þetta er áttunda árið í röð sem félagið hlýtur þessa viðurkenningu.