
Athugið að þessi síða flokkast sem markaðsefni. Vinsamlegast kynnið ykkur útboðslýsingu sjóðsins og lykilupplýsingar áður en fjárfestingarákvörðun er tekin.
Sjóðurinn er ætlaður þeim fjárfestum sem vilja ávaxta fé sitt til skemmri eða lengri tíma með fjárfestingum í innlánum fjármálafyrirtækja og dreifðu safni verðbréfa með stuttan meðallíftíma. Með fjárfestingu í sjóðnum má njóta hærri innlánavaxta í krafti stærðar sjóðsins.
Markmið sjóðsins er að auka verðmæti eigenda hans til skemmri tíma með fjárfestingum í innlánum, víxlum og skuldabréfum fjármálafyrirtækja. Sjóðurinn hefur jafnframt heimild til að fjárfesta í víxlum og skuldabréfum útgefnum af sveitarfélögum eða með ábyrgð ríkissjóðs Íslands. Meðallíftími eigna sjóðsins er breytilegur en getur að hámarki verið 1 ár.
Sæki gögn...
Sæki gögn...
Eignaflokkur | Vægi |
|---|---|
| Skuldabréf og víxlar útgefnir af íslenska ríkinu, verðbréfum og peningamarkaðsskjölum útgefnum af öðrum aðilum með beina ábyrgð ríkissjóðs Íslands | 0-60% |
| Innlán fjármálafyrirtækja | 40-100% |
| Víxlar og skuldabréf fjármálafyrirtækja | 0-50% |
| Víxlar og skuldabréf sveitarfélaga | 0-30% |
| Afleiður vegna stöðutöku | 0-10% |
Þær upplýsingar sem hér koma fram eru óendurskoðaðar. Söguleg ávöxtun er hvorki áreiðanleg vísbending um né trygging fyrir ávöxtun í framtíð. Fjárfestum er ráðlagt að leita sérfræðiráðgjafar og kynna sér vel þá fjárfestingarkosti sem í boði eru. Jafnframt eru fjárfestar hvattir til að kynna sér reglur, lykilupplýsingar og útboðslýsingar sjóða sem nálgast má á vefsíðu Kviku eignastýringar, www.kvikaeignastyring.is.
Skattlagning hlutdeildarskírteina fellur undir lög um tekjuskatt nr. 90/2003 um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur nr. 94/1996. Eigendur hlutdeildarskírteina í sjóðum eru hvattir til að kynna sér skattalega stöðu sína og leita ráðgjafar sérfræðinga s.s. skattalögfræðinga eða endurskoðenda.
Kvika eignastýring hf. hefur útvistað hluta af daglegum rekstri til Kviku banka hf. á grundvelli laga um verðbréfasjóði nr. 116/2021 og laga um sérhæfða sjóði nr. 45/2020. Kvika eignastýring hf. er fjármálastofnun með starfsleyfi sem rekstrarfélag verðbréfasjóða og sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða og lýtur eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands