
Athugið að þessi síða flokkast sem markaðsefni. Vinsamlegast kynnið ykkur útboðslýsingu sjóðsins og lykilupplýsingar áður en fjárfestingarákvörðun er tekin.
Sjóðurinn er ætlaður þeim fjárfestum sem vilja ávaxta fé sitt til skemmri tíma með virkri stýringu í stuttum innlendum skuldabréfum. Sjóður þessi gæti verið óhentugur fyrir fjárfesta sem hyggjast taka fé sitt út innan 6 mánaða.
Markmið sjóðsins er að skila ávöxtun í samræmi við skammtímavaxtastig á markaði og skal meðallíftími sjóðsins vera að hámarki tvö ár.
Sæki gögn...
Sæki gögn...
Eignaflokkur | Vægi |
|---|---|
| Peningamarkaðsgerningar og skuldabréf útgefin af sveitarfélögum og opinberum aðilum | 0-100% |
| Peningamarkaðsgerningar og skuldabréf útgefin af fjármálafyrirtækjum | 0-100% |
| Peningamarkaðsgerningar og skuldabréf útgefin af öðrum fyrirtækjum | 0-100% |
| Innlán fjármálafyrirtækja | 0-100% |
| Peningamarkaðsgerningar og skuldabréf útgefin af ríkissjóði, aðilum með ríkisábyrgð eða tryggðir með ríkisábyrgð | 0-50% |
| Óskráðir peningamarkaðsgerningar og skuldabréf | 0-20% |
| Afleiður | 0-30% |
Þær upplýsingar sem hér koma fram eru óendurskoðaðar. Söguleg ávöxtun er hvorki áreiðanleg vísbending um né trygging fyrir ávöxtun í framtíð. Fjárfestum er ráðlagt að leita sérfræðiráðgjafar og kynna sér vel þá fjárfestingarkosti sem í boði eru. Jafnframt eru fjárfestar hvattir til að kynna sér reglur, lykilupplýsingar og útboðslýsingar sjóða sem nálgast má á vefsíðu Kviku eignastýringar, www.kvikaeignastyring.is.
Skattlagning hlutdeildarskírteina fellur undir lög um tekjuskatt nr. 90/2003 um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur nr. 94/1996. Eigendur hlutdeildarskírteina í sjóðum eru hvattir til að kynna sér skattalega stöðu sína og leita ráðgjafar sérfræðinga s.s. skattalögfræðinga eða endurskoðenda.
Kvika eignastýring hf. hefur útvistað hluta af daglegum rekstri til Kviku banka hf. á grundvelli laga um verðbréfasjóði nr. 116/2021 og laga um sérhæfða sjóði nr. 45/2020. Kvika eignastýring hf. er fjármálastofnun með starfsleyfi sem rekstrarfélag verðbréfasjóða og sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða og lýtur eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands