Forsíða /
Framtakssjóðir /
Fréttir /
Arctic Adventures kaupir Special Tours

Arctic Adventures kaupir Special Tours

Þriðjudagur 04. júní 2024

Arctic Adventures hefur samið um kaup á öllu hlutafé í  móðurfélagi Special Tours, Whales of Iceland og Reykjavík Röst.

Special Tours hefur frá árinu 1996 sérhæft sig í hafsækinni ferðaþjónustu allan ársins hring frá Reykjavík, svo sem hvalaskoðun og norðurljósaferðum. Reykjavík Röst er kaffihús með notalegu útsýni yfir gömlu höfnina í Reykjavík. Whales of Iceland er stærsta hvalasafn í Evrópu, staðsett á Granda.

Fyrirtækin falla vel að starfsemi Arctic Adventures sem er eitt öflugasta og rótgrónasta ferðaþjónustufyrirtæki landsins. Stefna Arctic Adventures er að skapa ábyrgt og öruggt aðgengi að áfangastöðum í íslenskri náttúru auk þess að bjóða upp á sjálfbæra og vistvæna ferðaþjónustu um allt land.

„Special Tours, Reykjavík Röst og Whales of Iceland eru frábær viðbót við Arctic Adventures og koma til með að styrkja enn frekar okkar fjölbreytta framboð ferða og afþreyingar. Kaupin eru áfangi í vegferð okkar að byggja upp öflugt ferðaþjónustufélag og bjóða upp á fyrsta flokks ferðaþjónustu hér á landi. Íslensk ferðaþjónusta heldur áfram að vaxa jafnt og þétt og við ætlum að leggja okkur fram um að tryggja góða þjónustu og einstaka upplifun þeirra sem ferðast um landið. Kaupin styrkja þessi markmið,“ segir Ásgeir Baldurs, forstjóri Arctic Adventures. 

„Með kaupum Arctic Adventures á Special Tours skapast tækifæri til að sameina krafta tveggja öflugra fyrirtækja í ferðaþjónustu sem deila ástríðu fyrir því að skapa ógleymanlegar upplifanir með viðskiptavinum sínum. Ég hlakka til að taka þátt í þeirri öflugu þróun og uppbyggingu á íslenskri ferðaþjónustu sem Arctic Adventures stendur fyrir um allt land. Special Tours og dótturfélög munu starfa með óbreyttu sniði og veita viðskiptavinum sínum sömu framúrskarandi þjónustu," – segir Ásta María Marinósdóttir framkvæmdastjóri Special Tours.

Kaup Arctic Adventures á ST holding koma í kjölfar söluferlis í umsjón fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans og eru með fyrirvara um samþykki samkeppnisyfirvalda.