Innlendur framtakssjóður sem fjárfestir einungis í Bretlandi
Fjármögnun Harpa Capital Partners II (HCPII) lauk nú á dögunum en tekið var við áskriftum fyrir rúmlega 30 milljónir breskra punda og er það yfir efri mörkum þess sem stefnt var að. Alls eru rúmlega 50 fjárfestar í sjóðnum, en þar á meðal er Kvika banki. Sjóðurinn veitir íslenskum fagfjárfestum tækifæri á að fjárfesta í spennandi fyrirtækjum í Bretlandi við hlið Kviku, auk reyndra breskra fjárfesta og rekstraraðila.
Stofnun Hörpu byggir á árangri Kviku í framtaksfjárfestingum í Bretlandi en á síðastliðnum árum hefur Kvika, ásamt samstarfsaðilum og meðfjárfestum, tekið þátt í verkefnum þar sem lögð hefur verið áhersla á fjárfestingar í smærri fyrirtækjum með mikla vaxtarmöguleika og tækifæri á framúrskarandi ávöxtun.
Með samstarfi Kviku Eignastýringar og Kviku Securities í Bretlandi er sjóðnum tryggt öflugt tengslanet og fagþekking á breska markaðinum. Markmið sjóðsins er að hámarka ávinning fyrir hluthafa sína og skapa jákvæð áhrif á þau fyrirtæki sem fjárfest er í, m.a. með bættri stjórnarhæfni, auknum sveigjanleika í rekstri og markvissri markaðssókn.
Hannes Frímann Hrólfsson, framkvæmdarstjóri Kviku Eignastýringar:
“Með stofnun Hörpu sjóðsins nýtum við reynslu Kviku af breska markaðnum og höldum áfram að bjóða upp á áhugaverða fjárfestingarkosti fyrir okkar viðskiptavini. Við teljum að hér séu spennandi tækifæri til að styðja við og auka verðmætasköpun í ört vaxandi fyrirtækjum sem búa yfir skýrum vaxtarhorfum. Við erum afar ánægð með hve mikill áhugi hefur verið á sjóðnum, enda hefur Kvika lengi unnið markvisst að því að byggja upp virk tengsl við innlenda og erlenda fjárfesta.”
Reynslumikið teymi með gott aðgengi að fjárfestingartækifærum.
Kvika eignastýring, sem stýrir sjóðnum, er einn reynslumesti rekstraraðili framtakssjóða á Íslandi og hefur rekið fjóra framtakssjóði, Auði I (sem búið er að slíta), Eddu, Freyju og Iðunni. Stjórn sjóðsins er skipuð reynslumiklum hópi með áratuga þekkingu og reynslu af framtaksfjárfestingum í Bretlandi. Richard Beenstock forstjóri Kviku Securities, er formaður stjórnar en með honum eru Ármann Þorvaldsson forstjóri Kviku, Ágúst Guðmundsson fjárfestir og annar stofnandi Bakkavarar og Guðjón Reynisson, fyrrverandi forstjóri Hamleys í London, stjórnarmeðlimur í Kviku banka og stjórnarformaður Festi. Sjóðsstjóri sjóðsins er Pétur Richter.