Forsíða /
Framtakssjóðir /
Fréttir /
Iðunn fjárfestingarsjóður leiðir 650 milljóna króna fjármögnun PLAIO

Iðunn fjárfestingarsjóður leiðir 650 milljóna króna fjármögnun PLAIO

Miðvikudagur 14. ágúst 2024

Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið PLAIO hefur tryggt sér fjármögnun upp á 4,3 milljóna evra, eða um 650 milljónir króna. Fjármögnunin verður notuð til að efla starfsemi PLAIO í Evrópu og til sóknar á Bandaríkjamarkað, ásamt því að nýtast til þróunar á Coplanner, nýju tóli fyrirtækisins sem notar gervigreind til að auðvelda yfirsýn og ákvarðanir stjórnenda þegar kemur að skipulagningu framleiðslu lyfja og nýtingu aðfanga.

Iðunn, fjárfestingarsjóður í umsjá eignastýringu Kviku banka, leiðir fjármögnunina með áframhaldandi þátttöku frá núverandi fjárfestum, Frumtaki og Dr. Agon. Pétur Richter, fjárfestingastjóri Iðunnar, og Andri Sveinsson frá Dr. Agon taka í kjölfarið sæti í stjórn PLAIO.

PLAIO var stofnað árið 2021 og þróar hugbúnað með gervigreind fyrir lyfja- og líftæknifyrirtæki. Hugbúnaðurinn sjálfvirknivæðir aðfangakeðjur með það að markmiði að hagræða í rekstri og hámarka nýtingu aðfanga. Hugbúnaðurinn er sérstaklega hannaður til að mæta þörfum lyfjaiðnaðarins og er einfaldur í uppsetningu, sem þýðir minni tími og kostnaður viðskiptavina við innleiðingu. Viðskiptavinum PLAIO hefur fjölgað um 200% á undanförnum tólf mánuðum, og eru alþjóðleg lyfjafyrirtæki á borð við Covis Pharma, Camarus og Alvotech á meðal viðskiptavina.

Jóhann Guðbjargarson, stofnandi og framkvæmdastjóri PLAIO: Við stofnuðum PLAIO í þeim tilgangi að breyta úreltum, ónákvæmum og óhagkvæmum aðferðum í aðfangastýringu innan lyfjageirans. Ég hef starfað lengi við stýringu aðfangarkeðjunnar og orðið vitni að þeim flóknu vandamálum sem lyfjafyrirtæki standa frammi fyrir á hverjum degi þegar að kemur að ákvarðanartöku í aðfangakeðjunni. Það er meginástæðan fyrir því að við hófum þetta ferðalag, og þar sem áhugi og þróun á gervigreind heldur áfram að vaxa, erum við að upplifa mikinn vöxt og áhuga. Við erum spennt fyrir komandi misserum, og þessi fjármögnun mun hjálpa okkur að halda áfram að sækja fram og vaxa.

Pétur Richter, fjárfestingarstjóri hjá Iðunni: PLAIO er í forystu þegar kemur að stafrænni byltingu innan lyfjageirans, Við sjáum PLAIO sem mikilvæga lausn fyrir lyfjafyrirtæki og hún mun geta skipt sköpum þegar það kemur hámörkun og betri nýtingu hráefna. Við höfum sterka trú á að fyrirtækið muni vera leiðandi á þessu sviði innan nokkurra ára, og erum afar spennt að taka þátt í þessari vegferð.”

Nánari upplýsingar um PLAIO má finna á www.plaio.com.