Með kaupunum eykst þjónusta við viðskiptavini í Ameríku og er það liður í vaxtarstefnu Rotovia til ársins 2028.
Rotovia, sem er leiðandi fyrirtæki í hönnun og framleiðslu á hverfissteypum lausnum (e. rotomoulding solutions), hefur fest kaup á mexíkóska fyrirtækinu Ollin Plastics sem er stórt framleiðslufyrirtæki og sérhæft í hverfissteyptum afurðum. Kaupin marka tímamót fyrir fyrirtækið þar sem geta þess til að þjóna viðskiptavinum um alla Norður-Ameríku mun aukast til muna og styður við fyrirætlanir fyrirtæksins um ytri vöxt til ársins 2028.
Ollin Plastics er staðsett í Monterrey í Mexíkó og sérhæfir sig í hágæða hverfissteyptum vörum. Verksmiðjan hóf starfssemi árið 2022 og með nýjustu tækni og mikilli áherslu á gæði, býður Ollin Plastics viðskiptavinum sínum upp á stuðning við vöruhönnun ásamt miklum möguleikum er kemur að samsetningu. Veltan í ár verður um 20 mUSD og hjá félaginu starfa um 130 manns.
Daði Valdimarsson, forstjóri Rotovia: “Ég tel að með þessum kaupum geti Rotovia nýtt sér styrkleika Ollin Plastics til þess að ýta undir nýsköpun og vöxt í iðnaðinum. Kaupin á Ollin Plastics styðja mjög vel við langtímamarkmið félagsins og enn frekari vöxt í Norður-Ameríku, bæði á okkar eigin vörum og einnig í framleiðslu á vörum viðskiptavina okkar.“
Carlos De Santiago, verksmiðjustjóri Ollin Plastics: “Við erum mjög spennt að verða hluti af Rotovia og hlökkum til þeirra vaxtartækifæra sem verða af þessu. Saman getum við náð miklum árangri og haldið áfram að skila miklu virði til viðskiptavina okkar.“
Um Rotovia:
Rotovia framleiðir og hannar sínar eigin vörur undir vörumerkjunum Sæplast, Tempra, iTUB og VARIBOX ásamt því að framleiða ýmsa íhluti fyrir bílaframleiðendur, framleiðendur landbúnaðartækja, vindmylluframleiðendur og fleiri geira. Hjá Rotovia starfa um 850 starfsmenn í 11 verksmiðjum í 8 mismunandi löndum. Fyrirtækið er með höfuðstöðvar sínar á Dalvík.
Freyja framtakssjóður og meðfjárfestar eiga 26% eignarhlut í Rotovia í gegnum eignarhaldsfélagið Embla Invest ehf. Óbeinn eignahlutur Freyju er 22,2% í félaginu.
Nánari upplýsingar veitir Daði Valdimarsson í síma: 8985082, eða dadi.valdimarsson@rotovia.com.